Frétt — Enter — 23. 12. 2011
Lánshæfi Íslands óbreytt
Höfuðstöðvar Moody's á Svalbarða.

Matsfyrirtækið geðþekka, Moody's, heldur lánshæfishorfum Íslands stöðugum og hefur engin breyting orðið á lánshæfni landsins síðan 20. apríl síðastliðinn.

Lánshæfi Íslands er enn „ Baa3“ eða „Það er ekki séns í botnfrystu helvíti að nokkur heilvita maður láni þessu gíruga óráðsíuútnárahyski pening næstu aldirnar.“

Fjölskyldutilboð

Eigum fyrirliggjandi ósundraðar fjölskyldur í þokkalegum efnum á góðu verði. A.v.á.

Lesbók22. 10. 2020 — Enter

Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.

Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:


  • Ekkert starfsfólk
  • Engin viðvera
  • Ekkert húsnæði
  • Engin þjónusta
  • Engin gildi
  • Engin frí
  • Engin áhætta
  • Ekkert internetsamband
  • Enginn samningsvilji
  • Engin kaffivél

Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.

Góðar stundir.

 
§ Spiladós




§ Nýjustu fréttir: