Færeyski jólasveinninn Aðventumaðurinn var stöðvaður í Leifsstöð í morgun, þegar hann reyndi að komast inn í landið.
Hann hefur um árabil komið til byggða í Færeyjum á aðventunni, lagst á búfénað og heimilisfólk, spillt vatnsbólum og látið ófriðlega – auk þess sem hann hefur margsinnis verið ákærður fyrir húsbrot, hávaðamengun og ölvun á almannafæri.
Grunur leikur á að Aðventumaðurinn hafi ætlað sér að komast í samband við íslensku jólasveinana, ein alræmdustu skipulögðu glæpasamtök landsins.
Allt í íslenska kúrinn
Flot, garnir, mör og appelsín.
Kjörbúðin Karítas
Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.
Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:
Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.
Góðar stundir.