Huang Nobu gæti mögulega verið útsendari lífvera af annarri plánetu, sem hugsanlega eru bæði frímúrarar og einhverskonar afbrigði kommúnista.
Þetta fullyrðir húsmóðir í austurbæ Reykjavíkur, sem hefur skoðað gaumgæfilega myndir af Huang sem birst hafa í dagblöðum og í sjónvarpi undanfarið.
Hún segir Huang „augljóslega í lélegu kínamanna-dulargervi“ auk þess sem hann sé grunsamlega áþekkur miðaldra geimveru í öllu atgervi.
Hún telur auk þess fullljóst að Huang hyggist sölsa undir sig Ísland til að breyta því í útgeimsskemmtistað og vetrarbrautarsjoppu – eins og kom fyrir Færeyjar á síðustu öld.
Böðull
óskast strax. Gott kaup.
Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.
Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:
Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.
Góðar stundir.