Frétt — Númi Fannsker — 6. 3. 2002
Ríkissaksóknari býr sig undir að kæra Árna Johnsen
Enginn maður í sögu Íslands hefur nokkurntíma brotið jafn mörg lög á jafn skömmum tíma

Tónlistarmaðurinn Árni Johnsen verður, samkvæmt heimildum Baggalúts, ákærður fyrir athæfi sem stangast á við ákvæði um 700 lagagreina. Þar vega þyngst ákærur um landráð, föðurlandssvik, glæpi gegn mannkyninu og brot á löggjöf um hávaðamengun. Lögspakir heimildarmenn Baggalúts telja Árna geta átt von á allt að þriggja mánaða skilorðsbundnu fangelsi og fjársektum sem nema tugum þúsunda.

Dúllubossakvöld

frímúrara í kvöld kl. 21.00. Fjölmennum.

Lesbók22. 10. 2020 — Enter

Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.

Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:


  • Ekkert starfsfólk
  • Engin viðvera
  • Ekkert húsnæði
  • Engin þjónusta
  • Engin gildi
  • Engin frí
  • Engin áhætta
  • Ekkert internetsamband
  • Enginn samningsvilji
  • Engin kaffivél

Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.

Góðar stundir.

 
§ Spiladós




§ Nýjustu fréttir: