Neyðarlögin halda gildi sínu. Þetta er niðurstaða Hæstaréttar sem kvað upp sinn dóm rétt í þessu.
Er almenningur því beðinn um að geyma blásýrutöflurnar sem úthlutað var í morgun þar til þörf krefur síðar.
Um leið hefur viðbúnaðarstig lýðveldisins verið fært úr dumbrauðu í rústrautt.
Til sölu
Til sölu fallegur Range Rover, árgerð 2008 ekinn 2km. Skipti á bleiu koma til greina.
Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.
Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:
Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.
Góðar stundir.