Nokkrar býsna heillegar múmíur hafa fundist við uppgröft á Þingvöllum, skammt frá þar sem talið er að félagsmálagoði hafi haft aðsetur sitt til forna.
Svo virðist sem þær hafi á sínum tima gefist upp á því að bíða eftir félagslegum úrræðum stjórnvalda og er fundurinn talinn gefa vísbendingar um að ekkert muni nokkru sinni breytast á þessu landi.
Eistu týndust
í hestaferð um Austurland milli jóla og nýárs.
Fundarlaun!
A.v.á.
Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.
Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:
Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.
Góðar stundir.