Athygli hefur vakið í nýju fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar að gert er ráð fyrir að Halli sé á fjárlögum allt til ársins 2014.
Skiptist stjórnarandstaðan í tvær fylkingar hvað varðar andstöðu við þetta. Annars vegar eru þingmenn Sjálfstæðisflokksins sem telja að Halli eigi ekkert erindi á fjárlögin enda hafi hann ekki sést opinberlega árum saman. Hins vegar eru þingmenn Framsóknarflokksins og Hreyfingarinnar, sem telja fásinnu annað en að setja Ladda einnig á fjárlögin, fyrst Halli sé á þeim.
Dönsku blússurnar komnar!
Hafrannsóknastofnunin
Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.
Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:
Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.
Góðar stundir.