Hr. Ólafur Skúlason biskup varð fyrir því leiðinlega óhappi í gærmorgun að svokallaður smækkunargeisli hæfði hann þar sem hann átti leið framhjá leynilegri tilraunastöð Orkuveitunnar að Keldum. Hann tók óhappinu með jafnaðargeði, en hann er nú á stærð við meðalfarsíma. Hann kvaðst í samtali við Baggalút ætla að láta marga drauma sína rætast, "...en þeir krefjast þess flestir að lítið fari fyrir manni".
Aumingjar!
Við breytum ykkur í hesttanaða elgmassaða kalla á innan við fjórum árum!
Líkamsræktarstöðin Púlver
Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.
Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:
Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.
Góðar stundir.