Frétt — N?mi Fannsker — 2. 3. 2002
Fundu ástina í Vesturbæjarlaug
Eðvarð og Þór eru í sjöunda himni

Eðvarð Kárason símsmiður og Þór Wahtne fyrrverandi smíðakennari, fundu ástina í Vesturbæjarlauginni á dögunum. Eðvarð, sem var nemandi Þórs á árum áður sagðist alltaf hafa verið hrifinn af sínum gamla kennara og þegar þeir hittust fyrir tilviljun í heitasta pottinum í laugunum blossaði ástin upp milli þeirra. Þór segir Eðvarð alltaf hafa verið prýðisgóðan nemanda, og hann hafi haft augastað á honum síðan í 9. bekk, en aldrei látið á neinu bera, fyrr en þeir fundu hvor annan á nýjan leik í laugunum. Þeir búa nú saman í herbergi Þórs á Hrafnistu og hyggjast ganga í hjónaband með vorinu.

Dreki.

Nývanaður, 3ja alda dreki fæst gefins á gott heimili. Gegnir nafninu Filipus. A.v.á.

Lesbók22. 10. 2020 — Enter

Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.

Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:


  • Ekkert starfsfólk
  • Engin viðvera
  • Ekkert húsnæði
  • Engin þjónusta
  • Engin gildi
  • Engin frí
  • Engin áhætta
  • Ekkert internetsamband
  • Enginn samningsvilji
  • Engin kaffivél

Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.

Góðar stundir.

 
Nýjustu fréttir: