Í nótt var haldið upp á að 13 ár eru liðinn síðan bjórsala var leyfð á Íslandi og fóru hátíðahöld að mestu friðsamlega fram. Þó var karlmaður á miðjum aldri færður í fangageymslur lögreglunnar fyrir óspektir í miðbæ Reykjavíkur.
“Ég var bara að halda upp á bjórdaginn,” sagði maðurinn í viðtali við Baggalút eftir að honum hafði verið sleppt. “Ég var á móti því að leyfa hann á sínum tíma, en svo prófaði ég að smakka hann um daginn og fannst hann bara fínn.”
Maðurinn, sem starfar við þingmennsku og formennsku í vinstrisinnuðum og umhverfisvænum stjórnmálaflokki, er sagður hafa slagað um bæinn með fulla bjórkönnu hrópandi: “Davíð er fáviti!” Ekki er ljóst hvað honum gekk til, en málið er í rannsókn.
Til láns
Gömul pláneta. Hentar vel fyrir mjög þróaðar lífverur. Þarfnast smá lagfæringa eftir fyrri íbúa. Laus eftir um 500 ár.
Guð.
Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.
Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:
Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.
Góðar stundir.