„Já, nei ég bara veit ekki rass hvað ég á að kjósa,“ segir Engilbert H. Þengilsson, lífskúnstner og fagurkeri um Icesave-kosninguna.
„Ég er búinn að tala við alla sem ég þekki, tvisvar, horfa á alla þættina um Icesave á RÚV, ellefu sinnum, spá í bolla, fara til miðils, tala við prest og meira að segja spyrja konuna mína - en þetta bara er ekkert að koma. Ég er engu nær og veit ekki rass. Ekki baun í bala. Ekki djakksjitt,“ segir Engilbert.
En hvað ætlar hann þá að gera á morgun?
„Ég er búinn að bóna spariskóna, klæða mig í jakkafötin mín fínu og kaupa mér kassa af viskíi. Er að byrja að hella upp á mig í þessum töluðum orðum og ætla bara að mæta kexhellaður í fyrramálið og sjá hvað gerist. Ætli maður smelli svo ekki mynd af atkvæðinu svo maður muni hvað maður kaus. Best er að gera þetta í algeru blakkáti.“
Tölvupóstur!
Tek að mér að bera út tölvupóst fyrir einstaklinga og fyrirtæki. A.v.á.
Ég sé að fullháttvirtur forseti hins háa Alþingis er með eitthvað bakkaklór eftir ömurðarveisluna sem hann hélt á Völlunum að viðstöddu fámenni í gær.
„Forseti Alþingis harmar að heimsókn danska þingforsetans hafi verið notuð til að varpa skugga á hátíðarhöldin og leyfir sér að trúa því að það sé minnihlutasjónarmið að viðeigandi sé að sýna danska þingforsetanum óvirðingu þegar hann sækir okkur heim og kemur fram fyrir hönd danska Þjóðþingsins og dönsku þjóðarinnar.“ — segir forseti.
Ég mótmæli herra forseti.
Þessi vanhugsaða og alls óvelkomna heimsókn var hreint ekki „notuð“ til að varpa skugga á fjölmilljónapartíið þitt. Heiðursgesturinn flóttalegi sá alveg sjálfur um að varpa sínum skoðanamyrka skugga á hátíðahöldin og eyðileggja þau gersamlega.
Það eru miklu fremur Danir sem sýna okkur óvirðingu með því að senda þessa útdönkuðu rasistapíu hingað — og skömmin er þeirra að púkka upp á hana sem þingforseta yfirhöfuð.
Það er nefnilega míkróminnihlutasjónarmið að halda að það sé í lagi að dubba upp rauðklædda rasista og leiða til hásætis á hátíðarþingfundi á sjálfu Lögbergi. Og það að gera lítið úr gagnrýni á þetta skipulagsslys er ekkert annað ómerkilegt yfirklór og eftirámjálm.
Svo eiga menn bara að drullufrussfretast til að biðjast afsökunar á klúðrinu í stað þess að barma sér undan eðlilegum viðbrögðum við þessum skammarlega undirlægju– og druslugunguhætti.
Góðar stundir.