Útvarpsmaðurinn Jón Gnarr, sem hætti í dag í útvarpsþættinum Tvíhöfða á Radio-X, segir ástæðuna hafa verið of erfiða samkeppni við Baggalút.
“Tvíhöfði hefur að mestu gengið út á þjóðfélagsrýni og að greina hispurslaust frá atburðum líðandi stundar,” sagði Jón í einkaviðtali við Baggalút. “Þetta gekk mjög vel fyrst, en eftir að þið fóruð að vera meira áberandi höfum við stöðugt verið í öðru sæti.“
Hvað framtíðina varðar segist hann vera að spá í að sækja um hjá Baggalúti. “Ef þið viljið mig ekki fer ég örugglega bara að keyra leigubílinn aftur,” sagði Jón að lokum.
Ritstjórn óskar Jóni góðs gengis í framtíðinni, en bendir honum á að krafta hans er ekki þörf hjá Baggalúti.
Herbergi
45 fm til leigu með öllum þægindum, þ.m.t. salerni. Hentugt fyrir þingmann. A.v.á.
Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.
Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:
Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.
Góðar stundir.