Frétt — Enter — 15. 2. 2011
Býður sig á Laugaveginum
Maðurinn hyggst bjóða upp á heildarlausn á vændismarkaði.

Karlmaður á sextugsaldri hefur ákveðið að bjóða blíðu sína á Laugaveginum næstu daga, endurgjaldslaust.

„Þetta er svona smá tilboð, í takmarkaðan tíma ... bara svona fyrstir koma, fyrstir fá,“ segir maðurinn glaðlega og þvertekur fyrir að hann sé með þessu að undirbjóða rótgróinn og gróskumikinn vændismarkað á þessu svæði.

„Alls, alls ekki, ég ber mikla virðingu fyrir störfum þessa fólks. Þetta er meira svona viðbót, í raun bara góðgerðastarfsemi. Ég kom afskaplega vel undan hruninu, fjárhagslega - og lít á þetta sem smá viðleitni til að gefa dálítið aftur til samfélagsins.“

Útfrymi

Þarf vegna lífstjörnuflutninga að losa mig við mikið magn útfrymis. Tilboð óskast.
Gísli miðill.

Lesbók22. 10. 2020 — Enter

Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.

Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:


  • Ekkert starfsfólk
  • Engin viðvera
  • Ekkert húsnæði
  • Engin þjónusta
  • Engin gildi
  • Engin frí
  • Engin áhætta
  • Ekkert internetsamband
  • Enginn samningsvilji
  • Engin kaffivél

Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.

Góðar stundir.

 
§ Spiladós




§ Nýjustu fréttir: