Frétt — Spesi — 27. 2. 2002
Kvennaathvarfið snýr á útburðarmenn
Aðstoðarmenn eigendanna voru afar svekktir með lyktir mála

Eigendur hússins að Bárugötu 2 urðu heldur en ekki fyrir vonbrigðum í gærmorgun þegar þeir mættu í bítið að húsinu. Til stóð að fylgja eftir niðurstöðu Hæstaréttar um útburð Samtaka um kvennaathvarf úr húsinu, en svo virðist sem Samtökin hafi flutt í skjóli nætur.

“Þetta var rosalega svekkjandi,” sagði annar eigendanna í viðtali við Baggalút. “Við höfum hlakkað alveg ógeðslega lengi til að fá að bera þær út og vorum meira að segja búin að leigja nokkra gaura til að hjálpa til. Svo komum við á staðinn og þá eru bara allir farnir!”

Eigandinn, sem ekki vildi láta nafns síns getið, sagði að nú væri lítið fjör í að eiga þetta hús. “Ætli við verðum ekki bara að komast að því hvar nýja húsið þeirra er og reyna að kaupa það,” sagði hann að lokum.

Rýmingarsala - vegna óvissu á markaði

Silfurskottueistu, krókódílatár, leðurblökugarnir, marhnútahráki og muldir nykurhófar. Einnig lítið notað finngálkn og blindur urðarköttur. Allt á að seljast. Annars verður ykkur öllum breytt í froska.
Nornabúðin

Lesbók22. 10. 2020 — Enter

Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.

Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:


  • Ekkert starfsfólk
  • Engin viðvera
  • Ekkert húsnæði
  • Engin þjónusta
  • Engin gildi
  • Engin frí
  • Engin áhætta
  • Ekkert internetsamband
  • Enginn samningsvilji
  • Engin kaffivél

Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.

Góðar stundir.

 
Nýjustu fréttir: