Salmonella hefur greinst á tveimur endurskoðendaskrifstofum í Reykjavík og er talið að fjöldi ársreikninga hafi mengast af völdum þessa. Sýni sem tekin voru eru nú í greiningu í tilraunastöð Fjármálaeftirlitsins í hagmeinafræði og verða niðurstöðurnar sendar sýkladeild Seðlabankans til staðfestingar. Reynist niðurstaðan jákvæð og verði ekki hægt að einangra sýkinguna er hugsanlegt að fella verði allan íslenska endurskoðendastofninn.
Aðgerðapakkar!
Frábær þorratilboð á eintaklingsaðgerðapökkum, fjölskylduaðgerðapökkum, fyrirtækjaaðgerðapökkum, sveitarfélagaaðgerðapökkum og alþjoðaefnahagsaðgerðapökkum!
IMF
Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.
Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:
Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.
Góðar stundir.