Frétt — Kaktuz — 26. 2. 2002
Þjóðmenningarhús greiddi fyrir ráðgjöf heimilishundsins
Róbert "ráðgjafi" slappar af eftir erfiðan vinnudag.

Komið hefur í ljós við rannsókn Ríkisendurskoðunar á málefnum forstjóra Þjóðmenningarhúss að heimilishundur fjölskyldu forstjórans hefur starfað sem verktaki við stofnunina. Í bókhaldi kemur fram að hundurinn sem heitir Róbert og er af 'dachsund' kyni hafi veitt ráðgjöf á sviði "forvörslu og textafræði". Svo virðist sem hundurinn hafi fengið greitt eftir taxta opinberra sérfræðinga, samtals 630.000 kr. Ekki náðist í Róbert við gerð þessarar fréttar.

Lifandi fallbyssukúla

(fjárhagslega sjálfstæð) óskar eftir að kynnast reyklausum síamstvíburum, helst kvenkyns. Með nánari kynni í huga. Afgreiðsla vísar á.

Lesbók22. 10. 2020 — Enter

Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.

Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:


  • Ekkert starfsfólk
  • Engin viðvera
  • Ekkert húsnæði
  • Engin þjónusta
  • Engin gildi
  • Engin frí
  • Engin áhætta
  • Ekkert internetsamband
  • Enginn samningsvilji
  • Engin kaffivél

Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.

Góðar stundir.

 
Nýjustu fréttir: