Frétt — Enter — 1. 11. 2010
Heimsýn styrkir ríkisstjórnina
Frá fundi Heimssýnar um helgina, Styrmir Gunnarsson er hér í hlutverki ES-púkans.

Nokkrir duglegir krakkar í samtökunum Heimsýn söfnuðu um helgina 500 þúsund krónum sem þau ákváðu að færa ríkisstjórn Íslands að gjöf.

Settu þau það skilyrði að upphæðin yrði nýtt til að efla móðurmálskennslu og þjóðernisvitund hjá íslensku sauðfé.

Peningunum söfnuðu þau hjá Bændasamtökunum, með einu símtali.

Grafskrift óskast

þarf að vera hnitmiðuð, dapurleg, en um sjúklega fyndin. A.v.á.

Lesbók22. 10. 2020 — Enter

Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.

Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:


  • Ekkert starfsfólk
  • Engin viðvera
  • Ekkert húsnæði
  • Engin þjónusta
  • Engin gildi
  • Engin frí
  • Engin áhætta
  • Ekkert internetsamband
  • Enginn samningsvilji
  • Engin kaffivél

Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.

Góðar stundir.

 
Nýjustu fréttir: