Frétt — Enter — 5. 10. 2010
Jóhanna með nýtt tattú
Drekinn var flúraður af flúrmeistara ríkisins.

Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, fékk sér seint í nótt nýtt húðflúr – myndarlegan jökladreka – sem hún lét flúra á bakið á sér.

Vill Jóhanna með þessu sýna þjóðinni að henni sé full alvara með ást sinni á landi og þjóð, en drekinn er sem kunnugt er tákn og verndarvættur austurlands.

Hefur forsætisráðherra þar með látið húðflúra allar landvættirnar á líkama sinn.

Emúi

vanaður emúi, 14 vetra, óskar eftir að komast á gott heimili. Gegnir nafninu Erlingur. Afgreiðsla vísar á.

Lesbók22. 10. 2020 — Enter

Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.

Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:


  • Ekkert starfsfólk
  • Engin viðvera
  • Ekkert húsnæði
  • Engin þjónusta
  • Engin gildi
  • Engin frí
  • Engin áhætta
  • Ekkert internetsamband
  • Enginn samningsvilji
  • Engin kaffivél

Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.

Góðar stundir.

 
Nýjustu fréttir: