Frétt — Enter — 27. 9. 2010
Keypti Hvippinn og Hvappinn
Bóndinn ungi við hvippinn. Hvappurinn sést greinilega í baksýn.

Sunnlenskur ungbóndi festi í dag kaup á Hvappinum svonefnda, en þessa sögufrægu jörð fékk hann í skiptum fyrir tvær smærri jarðir, Hist og Her.

Fyrir átti hann Hvippinn sem hann keypti úr þrotabúi gamla Landsbankans fyrr á árinu.

Hyggst hann hefja dvergkartöflurækt út um allan Hvippinn og Hvappin, en landsvæðið er allstórt og þekur um 80% af Buskanum svokallaða.

Landi, sígarettur og bensín!

Bestu verðin í bænum!

Valdi sprútt

Lesbók22. 10. 2020 — Enter

Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.

Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:


  • Ekkert starfsfólk
  • Engin viðvera
  • Ekkert húsnæði
  • Engin þjónusta
  • Engin gildi
  • Engin frí
  • Engin áhætta
  • Ekkert internetsamband
  • Enginn samningsvilji
  • Engin kaffivél

Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.

Góðar stundir.

 
§ Spiladós




§ Nýjustu fréttir: