“Þetta er alveg frábært. Þegar við komum heim úr fríinu var bara komin ný eldhúsinnrétting, alls konar ný tæki í eldhúsið og parket í stofuna,” sagði Hansína Ernstdóttir (48) húsmóðir í Vestmannaeyjum, en hún og Emil (52) bóndi hennar komu heim frá Mallorca í gær.
Ekki er ljóst hvernig verkið var fjármagnað eða hverjir unnu það, né hvernig þeir komust inn á heimili hjónanna. “Ég veit ekki til þess að neinn hafi aukalykil, en ég er ekkert að velta mér upp úr því.”
Hansína segist hafa grun um hver stendur á bak við góðverkið, en neitar að gefa upp nafn. “Við skulum bara segja að ég set stundum permanent í eiginkonur ýmissa fyrirmenna hér í Eyjum og æ sér gjöf til gjalda. Það eru sumir hér í sveit sem sjá um sitt fólk,” sagði Hansína sposk á svip.
Viðskiptamenn athugið!
Krónan lækkaði um 1.2% í dag. Einstakt kauptækifæri fyrir framsýna einstaklinga.
Seðlabanki Íslands
Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.
Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:
Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.
Góðar stundir.