Frétt — Enter — 24. 4. 2010
Lost leikari veðurtepptur á Íslandi
Hér sést Thorbornsson á rabbi við annan, ekki síður þeldökkan leikara Lífsháska á tökustað.

Einn af aðalleikurum sjónvarpsþáttanna alræmdu Lífsháska, Thorborn 'Smokey' Thorbornsson, er staddur hér í stuttu leyfi.

Thorbornsson, sem er af íslenskum ættum, fer með hlutverk „blökkureyksins“ í þáttunum og hrellir þar þaulsetna strandaglópa dularfullrar eyjar í suðurhöfum.

Hann er nú að eigin sögn strandaglópur á annarri, enn dularfyllri og mun hættulegri eyju og sér ekki fram á að komast aftur til síns heima í bráð.

Enda segir hann að flugmálayfirvöld „fríki gersamlega út“ af einhverjum ástæðum, komi hann svo mikið sem nálægt flugvelli.

Gamlárspartý

hjá okkur. Allir velkomnir. Óli & Dorritt.

BYOB!

Lesbók22. 10. 2020 — Enter

Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.

Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:


  • Ekkert starfsfólk
  • Engin viðvera
  • Ekkert húsnæði
  • Engin þjónusta
  • Engin gildi
  • Engin frí
  • Engin áhætta
  • Ekkert internetsamband
  • Enginn samningsvilji
  • Engin kaffivél

Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.

Góðar stundir.

 
§ Spiladós




§ Nýjustu fréttir: