„Ég var aldrei í Quarashi,“ sagði Höskuldur Ólafsson, nýráðinn bankastjóri Arion banka í viðtali við Baggalút fyrir stundu.
Þegar blaðamaður Baggalúts spurði hvort hann væri þar með að afneita fortíð sinni og farsælum ferli með einni vinsælustu hljómsveit Íslandssögunnar sagði Höskuldur einfaldlega. „Skilurðu ekki mælt mál? Ég er ekki Hössi í Quarashi, ég er Hössi í Arion.“
Hann viðurkenndi þó, eftir langa mæðu að það væri vissulega meira töff fyrir bankann ef hann væri í raun Hössi í Quarashi.
Norðmenn!
Heja Norge!
Trond
Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.
Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:
Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.
Góðar stundir.