Frétt — Herbert H. Fritzherbert — 20. 2. 2002
Íslenskur stóll verðlaunaður á Arctic Chair Design 2002
Stóllinn hans Hreggviðs þótti smekklegur þrátt fyrir fiskibræluna

Íslenskur stóll, unninn eingöngu úr fiskibeinum og roði vann í gær til verðlauna á alþjóðlegri hönnunarhátíð, Arctic Chair Design 2002, í Nuuk á Grænlandi. Stóllin þykir afar smekklegur ásamt því að vera allþægilegur þrátt fyrir að honum fylgi nokkur ólykt. Hreggviður Bjarmann, sem hannaði stólinn, var einnig kjörinn bjartasta vonin á hátíðinni.

Til sölu

Nokkrir erlendir fjárfestingabankar, innlend fjármögnunarfyrirtæki, fasteignir (sumar ókláraðar) og ýmis lítið notuð verðbréf.
Einnig á sama stað tryggingafélög (flest því sem næst gjaldþrota).

Fjármálaeftirlitið

Lesbók22. 10. 2020 — Enter

Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.

Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:


  • Ekkert starfsfólk
  • Engin viðvera
  • Ekkert húsnæði
  • Engin þjónusta
  • Engin gildi
  • Engin frí
  • Engin áhætta
  • Ekkert internetsamband
  • Enginn samningsvilji
  • Engin kaffivél

Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.

Góðar stundir.

 
Nýjustu fréttir: