Frétt — Enter — 23. 3. 2010
Alþingi rústar nýsköpun
Frítt lósjon og kannabisplanta áttu að fylgja hverjum tan-dansi.

„Það er bara búið að kippa stoðunum undan öllum mínum áformum af einhverjum freðýsum og kommadruslum,“ segir Tumi Tóbíasarson, athafnamaður, en hann hafði uppi áform um að opna nýjan skemmtistað í næsta mánuði. Þau áform eru nú í uppnámi vegna banns á nektardansi og sólarbekkjanotkun ungmenna.

Á staðnum, sem heita átti Tan & tjútt, var ætlunin að bjóða upp á svokallaðan einkadans í ljósabekkjum, hugmynd sem lengi hefur blundað í Tuma.

„Þetta var allt klappað og klárt. Ég var búinn að redda nokkrum 17 ára píum frá Fjarskanistan, eiturhressum – og Slots léttöl og PokerMania.ru ætluðu að sponsa þetta.“

Pennavinur

Vil gjarnan skrifast á við stelpur á aldrinum 16-20 ára. Er sjálfur á 32. ári. A.v.á.

Lesbók22. 10. 2020 — Enter

Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.

Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:


  • Ekkert starfsfólk
  • Engin viðvera
  • Ekkert húsnæði
  • Engin þjónusta
  • Engin gildi
  • Engin frí
  • Engin áhætta
  • Ekkert internetsamband
  • Enginn samningsvilji
  • Engin kaffivél

Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.

Góðar stundir.

 
§ Spiladós




§ Nýjustu fréttir: