Bjólfur Skælan eigandi söluturns í Reykjavík vísaði í gær starfsmanni frá störfum fyrir þjófnað úr söluturninum. Bjólfur segir að starfsmaðurinn hafi seilst í kassann á klukkustundar fresti og tekið 4.000-5.000 krónur úr honum í senn.
Starfsmaðurinn neitar þessum sakargiftum: “Gamli eigandinn sagði að ég fengi aukalega borgað ef ég tæki að mér störf sem teljast vera utan hefðbundinna starfa sjoppustarfsmanns, eins og að raða namminu í hillurnar og gefa rétt til baka.”
Starfmaðurinn sagðist harma að nýjum eiganda söluturnsins var ekki gerð grein fyrir störfum hans, en heildarfjárhæð vegna vinnu hans nemur um 7,6 milljónum króna.
Um framtíðaráform sín sagðist starfsmaðurinn hafa sótt um stöðu í mötuneyti Landssímans, þar sem menn væru “skilningsríkari”.
Veiðimenn ath.:
Af gefnu tilefni er varað er við mökum við hverskyns gæs-, and- og mávfugla. Sóttvarnarlæknir
Ég sé að fullháttvirtur forseti hins háa Alþingis er með eitthvað bakkaklór eftir ömurðarveisluna sem hann hélt á Völlunum að viðstöddu fámenni í gær.
„Forseti Alþingis harmar að heimsókn danska þingforsetans hafi verið notuð til að varpa skugga á hátíðarhöldin og leyfir sér að trúa því að það sé minnihlutasjónarmið að viðeigandi sé að sýna danska þingforsetanum óvirðingu þegar hann sækir okkur heim og kemur fram fyrir hönd danska Þjóðþingsins og dönsku þjóðarinnar.“ — segir forseti.
Ég mótmæli herra forseti.
Þessi vanhugsaða og alls óvelkomna heimsókn var hreint ekki „notuð“ til að varpa skugga á fjölmilljónapartíið þitt. Heiðursgesturinn flóttalegi sá alveg sjálfur um að varpa sínum skoðanamyrka skugga á hátíðahöldin og eyðileggja þau gersamlega.
Það eru miklu fremur Danir sem sýna okkur óvirðingu með því að senda þessa útdönkuðu rasistapíu hingað — og skömmin er þeirra að púkka upp á hana sem þingforseta yfirhöfuð.
Það er nefnilega míkróminnihlutasjónarmið að halda að það sé í lagi að dubba upp rauðklædda rasista og leiða til hásætis á hátíðarþingfundi á sjálfu Lögbergi. Og það að gera lítið úr gagnrýni á þetta skipulagsslys er ekkert annað ómerkilegt yfirklór og eftirámjálm.
Svo eiga menn bara að drullufrussfretast til að biðjast afsökunar á klúðrinu í stað þess að barma sér undan eðlilegum viðbrögðum við þessum skammarlega undirlægju– og druslugunguhætti.
Góðar stundir.