Frétt — Enter — 23. 2. 2010
Full frá hruni
Lárus og Hrund, ásamt nágranna sínum, sem ţau miđla nú af reynslu sinni.

Hjónin Lárus og Hrund hafa hafa tekist á viđ kreppuna og efnahagshruniđ á nokkuđ sérstakan hátt, en ţau hafa veriđ full allt frá ţjóđnýtingu Glitnis.

„Ţetta svínvirkar alveg. Viđ erum ekkert dauđadrukkin sko, bara létt og skemmtileg,“ segir Lárus, örlítiđ drafandi – og samsinnir kona hans ţví um leiđ og hún blandar handa ţeim fjórđa hvítrússa dagsins.

„Galdurinn er bara ađ vera alltaf ađeins í ţví,“ segir Hrund og leggur áherslu á orđ sín. „Drekka sterkt međan verstu fréttirnar ganga yfir, en sulla svo í bjórnum eđa léttvíninu ţess á milli.“

„Svo er bara ađ passa ađ eiga alltaf nóg bland!“ hrópar Lárus ađ lokum og skálar hćstánćgđur viđ eiginkonu sína um leiđ og hann danglar duglega í bakhlutann á henni.

SódaStream

SódaStreamtćki, árgerđ 1986 glatađist í Vesturbć Reykjavíkur ađfaranótt sunnudags. Hafđi mikiđ tilfinningalegt gildi fyrir eigendur. Góđum fundarlaunum heitiđ.

Lesbók22. 10. 2020 — Enter

Ţađ er sérlega ánćgjulegt ađ taka viđ viđurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og ţar međ hluti af ţeim 2% fyrirtćkja sem geta státađ af slíkum árangri. Ljóst er ađ yfirgnćfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá ţví ađ vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mćttu ţau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtćki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrćkurnar.

Ţađ eru tíu lykilatriđi atriđi sem hafa komiđ Baggalúti á ţennan eftirsóknarverđa stađ, sem rétt er ađ deila međ áhugasömum:


  • Ekkert starfsfólk
  • Engin viđvera
  • Ekkert húsnćđi
  • Engin ţjónusta
  • Engin gildi
  • Engin frí
  • Engin áhćtta
  • Ekkert internetsamband
  • Enginn samningsvilji
  • Engin kaffivél

Beri önnur fyrirtćki gćfu til ađ fylgja fordćmi okkar er ljóst ađ íslenskur fyrirtćkjamarkađur yrđi skjótt heilbrigđari og nćđi undraskjótt ađ skipa sér í fremstu röđ í heiminum. En til ţess er lítil von, međan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhćfar, ákvarđanafćlnar gungur međ allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.

Góđar stundir.

 
Nýjustu fréttir: