Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra fór í dag til útlanda. Ferðin er afar leynileg og fást engar upplýsingar um hvert ráðherrann fór, með hverjum, hversu lengi hann verður eða afhverju ferðin var farin.
Það er þó vitað að ráðherra tók með sér fjögur pör af sokkum, tannbursta, 11 eyrnapinna, nýjasta tölublað Vikunnar og sviðasultu í loftæmdum umbúðum. Ekkert af þessu hefur þó fengist staðfest.
Búist er við yfirlýsingu frá kynningarfulltrúa ráðherrans þar sem fram mun koma að ráðherrann hafi farið til útlanda.
Getum bætt við okkur
fakírum í hálft starf. Fæði innifalið.
A.v.á.
Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.
Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:
Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.
Góðar stundir.