Grunur leikur á að Sigmar Sigmarsson, fyrrum nærfatamódel, hafi haldið tækifærisræðu í steggjaveislu besta vinar síns – bláedrú.
„Við vorum með honum allt kvöldið og sáum hann aldrei taka einn einasta sopa,“ segir einn steggurinn sárreiður og gramur og bætir við að ræðan hafi „meikað grunsamlega mikinn sens – svona eftir á að hyggja.“ Einnig hafi Sigmar sýnt fatafellunni geðþekku Analíu frá Neðra-Breiðholti „óvenju mikinn tilfinningalegan kulda“.
Ef rétt reynist á Sigmar yfir höfði sér brottvikningu úr vinahópi sínum og jafnvel endurgreiðslu á léttvíni, kokteilum og kannabisefnum, sem hann hélt fram að hann hefði innbyrt um kvöldið. Væri þetta í fyrsta skipti sem Íslendingur heldur ræðu utan templarahreyfingarinnar, frístundastarfs Kirkjunnar og meðferðarheimilisins Vogs – edrú.
Draugar athugið
erum með mikið af fallegum eignum í sölu víða á höfuðborgarsvæðinu.
Félag fasteignasala.
Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.
Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:
Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.
Góðar stundir.