Norsk-finnski áhugalandkönnuðurinn Ole Herjolfsdahl hefur skilað inn tilboði í olíuleit á Drekasvæðinu. Ole hefur víðtæka reynslu að landkönnun ýmiskonar, hefur komið til suður-Evrópu, Póllands og Bretlandseyja auk þess sem hann getur bent á öll fylki Bandaríkjanna á landakorti.
Við leitina hyggst Ole m.a. notast við svokallað GPS tæki, öflugan kíki og nær algjörlega vatnsheldan kafarabúning.
Tilkynning frá Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
Í anda þess þegar Bandaríkjastjórn breytti nafni franskra kartaflna í "Frelsiskartöflur" hefur nú verið ákveðið að enskur morgunverður skuli héðan í frá heita "Skítalabbatjallaógeðiskornflex"
Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.
Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:
Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.
Góðar stundir.