Frétt — Spesi — 7. 2. 2002
Halldór Blöndal spjaldar óþæga þingmenn
Halldór er afar strangur vítisengill

Nýtilkomið kerfi til að halda aga á Alþingi hefur gefist vel að undanförnu, að sögn Halldórs Blöndal vítisengils.

“Kerfið gengur í meginatriðum út á spjöld í ýmsum litum sem ég sýni þingmönnum eftir því sem mér finnst þeir hafa brotið af sér,” sagði Halldór. “Á þennan hátt get ég vítt þá þingmenn sem eru með einhvern skæting við mig.”

Nýlega fékk Ögmundur Jónasson að líta græna spjaldið fyrir munnsöfnuð, en á þessu kjörtímabili hefur Halldór gefið 8 græn spjöld, 15 rauð og 11 blá. Þar að auki hefur Hannes Hólmsteinn fengið 1 útfjólublátt spjald fyrir að trufla þingfund af þingpöllum.

Leðurblökumenn

Fjölmennum í hópferð á kvikmyndina skemmtilegu, og raunsæju, um Rökkurriddarann. - Félagið

Lesbók22. 10. 2020 — Enter

Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.

Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:


  • Ekkert starfsfólk
  • Engin viðvera
  • Ekkert húsnæði
  • Engin þjónusta
  • Engin gildi
  • Engin frí
  • Engin áhætta
  • Ekkert internetsamband
  • Enginn samningsvilji
  • Engin kaffivél

Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.

Góðar stundir.

 
§ Spiladós




§ Nýjustu fréttir: