Frétt — Myglar — 9. 3. 2009
Sinnir loftrýmiseftirliti við Ísland
Kaptajn Fjollerup sést hér í frægum bardaga við færeyska plasmaþursinn Tórolv árið 1987.

Danska atvinnuhetjan Kaptajn Fjollerup er kominn hingað til lands, en hann mun sjá um loftrýmiseftirlit yfir landinu næstu þrjá mánuðina. Slíkt eftirlit hefur verið á hendi ýmissa hetja upp á síðkastið, eftir að Captain America, sem sinnt hafði starfinu um langa hríð, sagði starfi sínu lausu nú ekki alls fyrir löngu.

Tæknileg aðstoð og radarþjonusta verður í höndum hins norskættaða vísindamanns Dr. Bombedal, en verkefninu verður stýrt úr leynilegu neðanjarðarbyrgi hans á Svalbarða.

Gefins

Leðurblaka. Kassavön og kelin.
A.v.á.

Lesbók22. 10. 2020 — Enter

Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.

Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:


  • Ekkert starfsfólk
  • Engin viðvera
  • Ekkert húsnæði
  • Engin þjónusta
  • Engin gildi
  • Engin frí
  • Engin áhætta
  • Ekkert internetsamband
  • Enginn samningsvilji
  • Engin kaffivél

Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.

Góðar stundir.

 
Nýjustu fréttir: