Frétt — Enter — 27. 2. 2009
Venni býður fram krafta sína
Venni hefur ekki tekið þátt í pólitísku starfi áður og er ekki með bílpróf, sem stendur.

Venni Thomsen, húsyrkjumaður, býður sig fram í 12.-13. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar (til vara) í Suðurkjördæmi.

Venni er að mestu sjálfmenntaður en hefur þó sótt spennandi námskeið bæði í Belgíu og í Hondúras.

Hann vill slá skjaldborg um heimilin og atvinnulífið og setja allt í forgang.

Verðbréfasalar

munið námskeið í lófa- og garnalestri og bollaspádómum, annað kvöld kl. 15. Allt að fyllast.

Lesbók22. 10. 2020 — Enter

Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.

Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:


  • Ekkert starfsfólk
  • Engin viðvera
  • Ekkert húsnæði
  • Engin þjónusta
  • Engin gildi
  • Engin frí
  • Engin áhætta
  • Ekkert internetsamband
  • Enginn samningsvilji
  • Engin kaffivél

Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.

Góðar stundir.

 
§ Spiladós




§ Nýjustu fréttir: