Vörður Hólmberg hagfræðingur hefur lagt fram formlega kvörtun til siðanefndar Blaðamannafélags Íslands þar sem hann heldur því fram að íslenskir fjölmiðlar hafi lagt sig í einelti. Felst téð einelti í „svo fordæmalausu afskiptaleysi að draga megi í efa hlutleysi þeirra,“ eins og fram kemur í erindi Varðar. Þá segir einnig í kvörtuninni að það sé „ljótt að skilja útundan.“
Kveðst Vörður hafa ákveðið að leggja fram kvörtunina þegar hann áttaði sig á að hann var eini hagfræðingur landsins sem ekki hefur verið spurður álits á efnahagsástandinu í fjölmiðlum.
Kona óskast
á skuttogara. Þarf að vera þolgóð og útsjónarsöm.
Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.
Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:
Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.
Góðar stundir.