Frétt — Númi Fannsker — 5. 2. 2002
Hryðjuverk!
Baggalútsmenn eru miður sín yfir árásum óprúttinna náunga

Nokkuð hefur borið á því undanfarna daga að unnin hafi verið skemmdarverk á vef Baggalúts, nánar tiltekið gestabók. Í ljósi þessa sér ritstjórn sig knúna til að hefta aðgang að gagnvirkum síðum sínum (gestabók og fyrirspurnum), tímabundið. Gestum er þó velkomið að senda starfsmönnum Baggalúts tölvupóst. Baggalútsmenn hafa rakið skemmdarverkin til ákveðinnar tölvu og munu bregðast við þessum árásum eins og tilefni þykir til.

Norðmenn!

Heja Norge!
Trond

Lesbók22. 10. 2020 — Enter

Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.

Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:


  • Ekkert starfsfólk
  • Engin viðvera
  • Ekkert húsnæði
  • Engin þjónusta
  • Engin gildi
  • Engin frí
  • Engin áhætta
  • Ekkert internetsamband
  • Enginn samningsvilji
  • Engin kaffivél

Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.

Góðar stundir.

 
§ Spiladós




§ Nýjustu fréttir: