Frétt — Myglar — 29. 1. 2009
Fékk ekki umboð til stjórnarmyndunar
Böðvar hefur undarnfarið hafst við í Alþingisgarðinum, sem talinn er einn besti staðurinn þegar mynda á ríkisstjórnir.

Böðvari Th. Kvartz, áhugaljósmyndara, hefur verið formlega synjað um umboð til stjórnarmyndunar, en um það hafði hann sótt formlega til Forseta Íslands.

Böðvar sagðist í viðtali ekki ætla að gefast upp, þrátt fyrir synjunina. Þvert á móti muni hann nú snúa sér að því að reyna að mynda starfhæfan meirihluta, en þeir eru afar sjaldséðir í hinu pólitíska landslagi.

Lítið notað

jólatré fæst gefins. Mikið skreytt. Afgreiðsla vísar á.

Lesbók22. 10. 2020 — Enter

Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.

Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:


  • Ekkert starfsfólk
  • Engin viðvera
  • Ekkert húsnæði
  • Engin þjónusta
  • Engin gildi
  • Engin frí
  • Engin áhætta
  • Ekkert internetsamband
  • Enginn samningsvilji
  • Engin kaffivél

Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.

Góðar stundir.

 
§ Spiladós




§ Nýjustu fréttir: