Samið hefur verið við Andrés Gröndal, fyrrverandi leikara, um að taka að sér menntamálaráðuneytið þegar núverandi ráðherra sest í oddvitastól borgarstjórnar-andstöðunnar í vor. Andrés hefur mikla reynslu af mennta- og menningarmálum, bæði sem nemandi til fjölda ára og listrænn stjórnandi brúðuleikhússins Kjartans. Hann sagðist í stuttu viðtali við Baggalút, ekki hafa miklar breytingar í hyggju, aðrar en að breyta Þjóðleikhúsinu í brúðuleikhús og einkavæða menntamálaráðuneytið.
Skápahommar
Erótísku vasaljósin eru komin aftur í öllum stærðum. A.v.á.
Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.
Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:
Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.
Góðar stundir.