Frétt — Myglar — 4. 2. 2002
Varnarliðið óhlýðnast skipunum
Þeir brugðust okkur á ögurstundu

Varnarliðið á Keflavíkurflugvelli óhlýðnaðist fyrirskipunum í tvígang nú um helgina. Í fyrra skiptið, á laugardaginn, neitaði varnarliðið að gera innrás í Svíþjóð. Í seinna skiptið, á sunnudaginn, hunsaði varnaliðið skipun um að gera innrás í Danmörk.

Davíð Oddsson, forsætisráðherra, var að vonum óánægður með viðbrögð varnarliðsins og sagði hann æstur við blaðamann Baggalúts "þessir bévítans kanar skilja bara ekki út á hvað handbolti gengur!"

Drekaflugur

Ertu á leið á drekaveiðar? Eigum mikið af góðum, handunnum flugum - einnig spúna og maðka. A.v.á.

Lesbók22. 10. 2020 — Enter

Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.

Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:


  • Ekkert starfsfólk
  • Engin viðvera
  • Ekkert húsnæði
  • Engin þjónusta
  • Engin gildi
  • Engin frí
  • Engin áhætta
  • Ekkert internetsamband
  • Enginn samningsvilji
  • Engin kaffivél

Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.

Góðar stundir.

 
Nýjustu fréttir: