Frétt — Enter — 31. 1. 2002
Íslandsbanki með nýja þjónustu
Þessi drengur fær aðstoð þjónustufulltrúa við að leggja inn á reikning Vals Ingimundarsonar

Íslandsbanki mun frá og með deginum í dag taka upp þá nýbreytni að bjóða viðskiptavinum sínum að leggja sparifé sitt beint inn á reikning stjórnarmanna bankans. Er þetta gert til að mæta vaxandi óánægju almennings með lélega ávöxtun af almennum bankareikningum.

Í tilkynningu bankaráðs segir að þetta sé mun heiðarlegri lausn af hálfu bankans en áður hefur tíðkast - hugsuð til að auka traust almennings á bankakerfinu í heild.

Vonbiðlar athugið

Biðilsbuxurnar sívinsælu komnar! Margir litir.
Fataverzlunin Popplín - Hafnarfirði

Lesbók19. 7. 2018 — Enter

Ég sé að full­hátt­virtur forseti hins háa Al­þingis er með eitthvað bakkaklór eftir ömurð­ar­veisluna sem hann hélt á Völl­unum að við­stöddu fá­menni í gær.

„Forseti Al­þingis harmar að heim­sókn danska þing­forsetans hafi verið notuð til að varpa skugga á hátíðar­höldin og leyfir sér að trúa því að það sé minni­hluta­sjónar­mið að við­­eigandi sé að sýna danska þing­­for­setanum óvirð­ingu þegar hann sækir okkur heim og kemur fram fyrir hönd danska Þjóð­þingsins og dönsku þjóðar­innar.“ — segir forseti.

Ég mót­mæli herra forseti.

Þessi van­hugsaða og alls óvel­komna heim­sókn var hreint ekki „notuð“ til að varpa skugga á fjöl­milljóna­partíið þitt. Heiðurs­gesturinn flótta­legi sá alveg sjálfur um að varpa sínum skoðana­myrka skugga á hátíða­höldin og eyði­leggja þau gersam­lega.

Það eru miklu fremur Danir sem sýna okkur óvirðingu með því að senda þessa út­dönkuðu rasista­píu hingað — og skömmin er þeirra að púkka upp á hana sem þing­forseta yfir­höfuð.

Það er nefni­lega míkró­minni­hluta­sjónar­mið að halda að það sé í lagi að dubba upp rauð­klædda rasista og leiða til hásætis á hátíðar­þing­fundi á sjálfu Lög­bergi. Og það að gera lítið úr gagn­rýni á þetta skipulags­slys er ekkert annað ómerki­legt yfir­klór og eftirá­mjálm.

Svo eiga menn bara að drullu­fruss­fretast til að biðjast af­sökunar á klúðrinu í stað þess að barma sér undan eðli­legum við­brögðum við þessum skammar­lega undir­lægju– og druslu­gungu­hætti.

Góðar stundir.

 
§ Spiladós




§ Nýjustu fréttir: