Frétt — Enter — 30. 1. 2002
Afkomandi Árna Magnússonar bjargar þjóðarverðmætum
Árni með heildarútgáfu af Stiklum Ómars Ragnarssonar, sem honum áskotnaðist

Árni Magnús Árnason, afkomandi Árna Magnússonar, handritasafnara hefur hafið söfnun meðal landsmanna á gömlum vídeóspólum. Hann fer nú um landið og leitar að sjaldgæfum spólum með norrænu efni. Hann hefur þegar safnað um 30 spólum, þar af ákaflega sjaldgæfu og mikið notuðu eintaki af stundinni okkar með Bryndísi Schram. Landsmenn eru beðnir um að taka þessu þarfa framtaki opnum örmum.

Á að mótmæla?

Heykvíslar, tjara, fiður og lambhússettur í miklu úrvali. Einnig auðmannavúdúdúkkurnar vinsælu.
Mótmælaþjónusta Magga.

Lesbók22. 10. 2020 — Enter

Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.

Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:


  • Ekkert starfsfólk
  • Engin viðvera
  • Ekkert húsnæði
  • Engin þjónusta
  • Engin gildi
  • Engin frí
  • Engin áhætta
  • Ekkert internetsamband
  • Enginn samningsvilji
  • Engin kaffivél

Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.

Góðar stundir.

 
§ Spiladós




§ Nýjustu fréttir: