Frétt — Kaktuz — 30. 1. 2002
Byltingarkennd kenning mannfræði prófessors
Dr. Jóhann útskýrir hér fylgni milli mannáts og fólksfækkunnar

Fyrirlestur Dr. Jóhanns Fjalldal, prófessors í mannfræði við Háskóla Íslands, á nýafstaðinni ráðstefnu norrænna mannfræðinga vakti mikla athygli. Þar útskýrði hann kenningar sínar um mannát og áhrif þess á fólksfjölgun í nútíma samfélagi. "Í stuttu máli benda kenningar mínar til þess að mannát geti haft mjög neikvæð áhrif á fólksfjölgun þegar til lengri tíma er litið, einkum getur það haft mjög slæm áhrif á almenna stemningu í samfélögum", sagði doktorinn í stuttu símaviðtali við fréttamann Baggalúts.

Reykvíkingar

ekki gleyma að gefa ógæfumönnunum. Þeir eru jafn ósjálfbjarga að sumri til, ólíkt smáfuglunum.

Lesbók22. 10. 2020 — Enter

Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.

Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:


  • Ekkert starfsfólk
  • Engin viðvera
  • Ekkert húsnæði
  • Engin þjónusta
  • Engin gildi
  • Engin frí
  • Engin áhætta
  • Ekkert internetsamband
  • Enginn samningsvilji
  • Engin kaffivél

Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.

Góðar stundir.

 
§ Spiladós




§ Nýjustu fréttir: