Frétt — Enter — 28. 1. 2002
Ísraelar í sjálfsmorðshugleiðingum?
Stelpurnar ætla að sprengja sig eftir kvöldmat

Ariel Sharon, áhugamaður um ofbeldi, hefur ákveðið að setja á laggirnar sérstaka sjálfsmorðssveit kvenna innan ísraelska hersins, í kjölfar yfirlýsinga kvenréttindaarms Hamas um rétt kvenna til að sprengja sig í loft upp.

"Mér fannst þetta helvíti góð hugmynd hjá þeim þarna vesturfrá," sagði Sharon hress í bragði í stuttu spjalli við Baggalút. "..við notum þeirra eigin meðöl gegn þeim - þýðir ekkert annað í svona brölti."

Fyrsti hópurinn mun hefja störf í kvöld og hyggst sprengja sig í loft upp á "alveg nýjum og óvæntum stað", að sögn Sharons. Þetta er ákveðin stefnubreyting hjá ísraelska hernum, en hingað til hafa harðir dómar legið við sjálfsmorðum.

Leðurblökumenn

Fjölmennum í hópferð á kvikmyndina skemmtilegu, og raunsæju, um Rökkurriddarann. - Félagið

Lesbók22. 10. 2020 — Enter

Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.

Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:


  • Ekkert starfsfólk
  • Engin viðvera
  • Ekkert húsnæði
  • Engin þjónusta
  • Engin gildi
  • Engin frí
  • Engin áhætta
  • Ekkert internetsamband
  • Enginn samningsvilji
  • Engin kaffivél

Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.

Góðar stundir.

 
§ Spiladós




§ Nýjustu fréttir: