Vísindamenn við Háskóla Íslands hafa lokið við að greina höfuðkúpuna dularfullu sem fannst í Kjósarhreppi á dögunum.
Fullvíst þykir að kúpan sé af fullorðnum Húnvetningi í stærri kantinum, enda ber hún öll helstu einkenni þess stofns.
Engar viðhlítandi skýringar hafa þó fundist á því hvers vegna beinin fundust í Kjósarhreppi, en engin dæmi eru um að Húnvetningur hafi hætt sér svo sunnarlega, sjálfviljugur.
Tenór óskast strax
í meðalstórt hugbúnaðarfyrirtæki góð Excelkunnátta nauðsynleg.
A.v.á.
Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.
Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:
Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.
Góðar stundir.