Frétt — Myglar — 9. 3. 2008
Tilvist hins íslenska páskahéra sönnuð
Hérinn kvaðst við yfirheyrslur heita Páskaeggert Feldhéri og vera hinn fyrsti af þrettán bræðrum

Tilvist hins íslenska páskahéra hefur nú loks verið sönnuð.

Þjóðháttafræðingar hafa lengi talið að til væri íslensk hliðstæða hins erlenda páskahéra, sem rétt eins og hinir íslensku jólasveinar væri illkvittinn, óheiðarlegur og ofbeldishneigður.

Þessar kenningar sönnuðust svo loks nú um helgina þegar ekta íslenskur páskahéri var handtekinn af lögreglu í miðbænum fyrir slagsmál og ölvun á almannafæri, en hann hafði gengið í skrokk á unglingum sem kölluðu hann "væmið tuskudýr".

Tenór óskast strax

í meðalstórt hugbúnaðarfyrirtæki góð Excelkunnátta nauðsynleg.
A.v.á.

Lesbók22. 10. 2020 — Enter

Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.

Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:


  • Ekkert starfsfólk
  • Engin viðvera
  • Ekkert húsnæði
  • Engin þjónusta
  • Engin gildi
  • Engin frí
  • Engin áhætta
  • Ekkert internetsamband
  • Enginn samningsvilji
  • Engin kaffivél

Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.

Góðar stundir.

 
Nýjustu fréttir: