Frétt — Enter — 24. 2. 2008
Konudagur
Hér má sjá nokkrar íslenskar konur gera sér glaðan dag í tilefni dagsins.

Konudagurinn svokallaði er í dag, en undanfarin ár hefur skapast falleg hefð fyrir því að á þessum degi geri karlar vel við konur sínar, dekri við þær og hrósi þeim venju fremur fyrir matseld, þvotta og og önnur heimilisstörf. Einnig eru dæmi um að menn hleypi konum sínum eftirlitslaust út á meðal almennings og gauki jafnvel að þeim dulitlum vasapeningum til að gera sér glaðan dag.

Hefð er fyrir því að ríkisstjórn Íslands veiti konum ákveðin réttindi á þessum degi og verður ekki undantekning þar á í ár. Munu konur því hafa kosningarétt til jafns á við karlmenn, fram til miðnættis í kvöld.

Gefins

allt Roxette safnið, komplett á kasettum. A.v.á.

Lesbók19. 7. 2018 — Enter

Ég sé að full­hátt­virtur forseti hins háa Al­þingis er með eitthvað bakkaklór eftir ömurð­ar­veisluna sem hann hélt á Völl­unum að við­stöddu fá­menni í gær.

„Forseti Al­þingis harmar að heim­sókn danska þing­forsetans hafi verið notuð til að varpa skugga á hátíðar­höldin og leyfir sér að trúa því að það sé minni­hluta­sjónar­mið að við­­eigandi sé að sýna danska þing­­for­setanum óvirð­ingu þegar hann sækir okkur heim og kemur fram fyrir hönd danska Þjóð­þingsins og dönsku þjóðar­innar.“ — segir forseti.

Ég mót­mæli herra forseti.

Þessi van­hugsaða og alls óvel­komna heim­sókn var hreint ekki „notuð“ til að varpa skugga á fjöl­milljóna­partíið þitt. Heiðurs­gesturinn flótta­legi sá alveg sjálfur um að varpa sínum skoðana­myrka skugga á hátíða­höldin og eyði­leggja þau gersam­lega.

Það eru miklu fremur Danir sem sýna okkur óvirðingu með því að senda þessa út­dönkuðu rasista­píu hingað — og skömmin er þeirra að púkka upp á hana sem þing­forseta yfir­höfuð.

Það er nefni­lega míkró­minni­hluta­sjónar­mið að halda að það sé í lagi að dubba upp rauð­klædda rasista og leiða til hásætis á hátíðar­þing­fundi á sjálfu Lög­bergi. Og það að gera lítið úr gagn­rýni á þetta skipulags­slys er ekkert annað ómerki­legt yfir­klór og eftirá­mjálm.

Svo eiga menn bara að drullu­fruss­fretast til að biðjast af­sökunar á klúðrinu í stað þess að barma sér undan eðli­legum við­brögðum við þessum skammar­lega undir­lægju– og druslu­gungu­hætti.

Góðar stundir.

 
§ Spiladós




§ Nýjustu fréttir: