Frétt — Enter — 25. 1. 2002
Bóndadagurinn varasamur
Ragnar er að upplagi ákaflega venjulegur maður að sögn kunnugra.

Ragnar Tumason, hannyrðasmiður (52), fékk alvarlegt taugaáfall snemma í morgun þegar kona hans Elín Einarsdóttir, tannsmiður(57), færði honum morgunverð í rúmið í tilefni af bóndadeginum svokallaða.

"..Raggi er að jafna sig," sagði Elín í samtali við Baggalút, "..ég ætlaði nú bara að hressa hann aðeins við - en þegar han sá mig með ristabrauðið fór hann bara að öskra, síðan brast hann í grát og lagðist í gólfið.

Landlæknir hefur margsinnis varað við þessum degi og telur að fátt ógni heilbrigðri geðheilsu karlmanna meira en tilgerðalegur dagamunur sem þessi.

Til sölu

tveggja manna geimskip, gult, ekið 14.000 ljósár. Skipti á smábíl koma til greina.

Lesbók22. 10. 2020 — Enter

Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.

Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:


  • Ekkert starfsfólk
  • Engin viðvera
  • Ekkert húsnæði
  • Engin þjónusta
  • Engin gildi
  • Engin frí
  • Engin áhætta
  • Ekkert internetsamband
  • Enginn samningsvilji
  • Engin kaffivél

Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.

Góðar stundir.

 
Nýjustu fréttir: