Frétt — N?mi Fannsker — 22. 12. 2007
Ljóshærð drusla giftist plebba á rauðum sportbíl
Eva og Finnur giftu sig á Þingvöllum (eins og 99% hérlendra ljóshærðra druslna og plebba á rauðum sportbíl).

Samkvæmt nýrri skýrslu Félagsfræðistofnunar Háskóla Íslands, þjóðkirkjunnar og Siðfræðistofnunar, hefur það færst mjög í vöxt að ljóshærðar druslur giftist plebbum á rauðum sportbílum.

Í dag gengu þau í hjónaband Eva Erlu-Magnúsardóttir, ljóshærð drusla og Finnur M. Fjallberg, plebbi á rauðum sportbíl. Eru þau 28. parið á árinu sem fellur undir skilgreiningu Hagstofunnar á ljóshærðri druslu og plebba á rauðum sportbíl, sem gengur í hjónaband.

26 þessara hjónabanda lauk jafnframt á árinu, með þeim afleiðingum að ljóshærðu druslurnar fengu rauðan sportbíl.

Framsóknarmenn allra flokka!

Vorum að fá mikið magn af almannafé fyrir slikk. Fyrstir koma, fyrstir fá.
Orkuveitan.

Lesbók22. 10. 2020 — Enter

Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.

Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:


  • Ekkert starfsfólk
  • Engin viðvera
  • Ekkert húsnæði
  • Engin þjónusta
  • Engin gildi
  • Engin frí
  • Engin áhætta
  • Ekkert internetsamband
  • Enginn samningsvilji
  • Engin kaffivél

Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.

Góðar stundir.

 
Nýjustu fréttir: