Frétt — Enter — 20. 12. 2007
Bannað að sprengja Kínverja um áramótin?
Þrátt fyrir allnokkra stofnstærð eru Kínverjar friðaðir með öllu.

Alþjóðleg mannréttindasamtök hafa tekið sig saman og fordæmt þann sið Íslendinga að sprengja Kínverja um áramót.

Í harðorðri ályktun sem send var stjórnvöldum í morgun er sprengingunum mótmælt, þær sagðar villimannslegar og ómannúðlegar - og beinum aðgerðum hótað verði þær ekki tafarlaust aflagðar með öllu. Þá er sala á Kínverjum til almennings harðlega gagnrýnd.

Að sögn talsmanns dómsmálaráðuneytis er verið að kanna málið, en sá taldi jafnframt að um hugsanlegan misskilning væri að ræða.

Til sölu

Lítið notað sveitarfélag á Langanesi. Áhugasamir hafi samband við afgreiðslu.

Lesbók22. 10. 2020 — Enter

Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.

Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:


  • Ekkert starfsfólk
  • Engin viðvera
  • Ekkert húsnæði
  • Engin þjónusta
  • Engin gildi
  • Engin frí
  • Engin áhætta
  • Ekkert internetsamband
  • Enginn samningsvilji
  • Engin kaffivél

Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.

Góðar stundir.

 
§ Spiladós




§ Nýjustu fréttir: