Frétt — Enter — 8. 12. 2007
FJÖGURÞÚSUNDASTA FRÉTTIN
Mikill viðbúnaður er í höfuðstöðvum Baggalúts vegna keppninnar.

Baggalútur efnir hér með til opinnar samkeppni um fjögurþúsundustu frétt vefsvæðisins.

Reglurnar eru að venju einfaldar:
1. Fréttin skal vera vera kjarnyrt, stutt og upplýsandi.
2. Fréttin skal ekki misbjóða velsæmiskennd ritstjórnar.
3. Fréttinni skal fylgja mynd.
4. Fréttin má ekki hafa birst áður opinberlega.
5. Fréttin skal vera sannleikanum samkvæm.


FRÉTTIR SKAL FÆRA TIL SKRÁSETNINGAR HÉR.

Skilafrestur er til hádegis, sunnudaginn 16. desember 2007. Allþokkaleg verðlaun eru í boði fyrir sigurvegarann.

Hér má til glöggvunar lesa 1000. fréttina,2000. fréttina og 3000. fréttina ásamt öðrum innsendum fréttum.

Frá Fiskistofu

Gildi hefur tekið reglugerð nr. 132.b.11.2008, um bann við áti á öðru meðlæti en kartöflum með eftirfarandi fisktegundum: Ýsu, þorski, ufsa, loðnu, skarkola, steinbít og krossfiski.

Lesbók22. 10. 2020 — Enter

Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.

Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:


  • Ekkert starfsfólk
  • Engin viðvera
  • Ekkert húsnæði
  • Engin þjónusta
  • Engin gildi
  • Engin frí
  • Engin áhætta
  • Ekkert internetsamband
  • Enginn samningsvilji
  • Engin kaffivél

Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.

Góðar stundir.

 
§ Spiladós




§ Nýjustu fréttir: