Kona á áttræðisaldri var í morgun handtekin, en hún er grunuð um að hafa á síðustu vikum og mánuðum hlaðið niður gífurlegu magni af illa fengnu sjónvarpsefni. Mun konan auk þess hafa dreift efninu til vitorðsmanna sinna á dvalarheimilinu Kotasælu og þegið fyrir það ýmsa greiða.
Að sögn lögreglu er um að ræða ríflega 15.000 þætti af Leiðarljósi, alla 25 árgangana af Derrick og nánast allar kynningar Guðmundar Bragasonar, sjónvarpsþulu.
Til sölu
pennar, servíettur, músamottur og brjóstsykur - merkt Íslandsbanka. Sanngjarnt verð.
Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.
Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:
Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.
Góðar stundir.