Múgur og margmenni var á vel heppnaðri árshátíð goða, mannkynsfrelsara og annarra guðlegra vætta sem fram fór í Reykjavík á laugardag. Mikið var um dýrðir og fjölmörg skemmtiatriði voru í boði.
Meðal þeirra sem tróðu upp við góðan orðstír voru töframaðurinn Búdda, magadansarinn Visnú og lúðraþeytarinn Heimdallur. Veislustjóri var hinn eldhressi og síkáti Loki Laufeyjarson.
Flóðhestur
mikið vanaður fæst gefins, eða í skiptum fyrir lítinn 'konubíl'. A.v.á.
Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.
Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:
Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.
Góðar stundir.